
Greiningarpróf keyrð í tækinu
Forritið Xperia™ Diagnostics getur prófað tilteknar aðgerðir eða gert alhliða greiningarpróf
til að gá hvort Xperia™-tækið virkar sem skyldi.
Xperia™ Diagnostics getur:
•
Metið hugsanleg vél- eða hugbúnaðarvandamál í Xperia™-tækinu.
•
Greint frammistöðu forrita í tækinu.
•
Skráð fjölda slitinna símtala síðustu 10 daga.
•
Borið kennsl á uppsettan hugbúnað og veitt gagnlegar upplýsingar um tækið.
Forritið Xperia™ Diagnostics er foruppsett í flestum Android™-tækjum frá Sony. Ef
greiningarkosturinn er ekki til staðar í
Stillingar > Um símann eða í valmyndinni VERKFÆRI í
stuðningsforritinu er hægt að sækja létta útgáfu í Play Store™-forritinu.